Náttúrufræði 8. bekkur

LOTA 2 · EÐLISFRÆÐI

Kraftur
og hreyfing

Hreyfing, kraftar, lögmál Newtons, þrýstingur og flot.

29. SEPTEMBER–26. NÓVEMBER

Kennsluáætlun

Dagsetningar eru mismunandi eftir hópum. Frídagar hafa þegar verið teknir út.

Dagatal: 30. september er starfsdagur. Foreldradagur og vetrarfrí 21.–26. október detta einnig út.
Tími8.A8.BEfni og verkefni
1Þri. 29. sept.Fim. 1. okt.1.1 HreyfingBls. 8–11 + sjálfspróf 1.1. Verklegt: vegalengd, tími og hraði.Opna námsefni og æfingar🎬 Hraði, stefnuhraði og hröðun
2Þri. 6. okt.Mið. 7. okt.1.2 Kraftar breyta hreyfinguFyrri hluti: kraftur, kraftmælir, þyngdarkraftur og mótkraftur. Sýnitilraun með kraftmæli.Opna námsefni og æfingar🎬 Kraftar náttúrunnar
3Fim. 8. okt.Fim. 8. okt.1.2 Kraftar breyta hreyfinguNúningur, massi og þyngd + valdar spurningar úr sjálfsprófi.Opna námsefni og æfingar
4Þri. 13. okt.Mið. 14. okt.1.3 Frjálst fallFrjálst fall, loftmótstaða og hringhreyfing. Gervihnettir og miðsóknarkraftur lauslega.Opna námsefni og æfingar
5Fim. 15. okt.Fim. 15. okt.1.4 Tregða og lögmál NewtonsTregða og lögmál Newtons. Stutt tregðutilraun.Opna námsefni og æfingar
6Þri. 20. okt.— (vetrarfrí)1.4 Tregða – áframÁframhald í kafla 1.4 og verkefnavinna.Opna námsefni og æfingar
7Þri. 27. okt.Mið. 28. okt.Ljúka 1.4 og upprifjun 1.1–1.4Klára kafla 1.4 og rifja upp hreyfingu, krafta, frjálst fall og tregðu. Gagnvirkar æfingar úr köflum 1.1–1.4.Opna námsefni og æfingar
8Fim. 29. okt.Fim. 29. okt.Lögmál Newtons og verkefnavinnaAukatími í lögmál Newtons: tengja lögmálin við dæmi úr daglegu lífi. Gagnvirkar æfingar í lögmálum Newtons.Opna námsefni og æfingar
9Þri. 3. nóv.Mið. 4. nóv.📝 Stutt námsmat 1Hreyfing, kraftar, frjálst fall, tregða og lögmál Newtons (1.1–1.4).
10Fim. 5. nóv.Fim. 5. nóv.2.1 Þrýstingur á föst efniBls. 38–42 og sjálfspróf. Kraftur og flatarmál; gagnvirkar æfingar í þrýstingi og eðlismassa.Opna námsefni og æfingar
11Þri. 10. nóv.Mið. 11. nóv.2.2 Þrýstingur í vökvumÞrýstingur og dýpi, eðlismassi og sýnitilraun. Gagnvirkar æfingar í þrýstingi og eðlismassa.Opna námsefni og æfingar
12Fim. 12. nóv.Fim. 12. nóv.2.2 Flotkraftur og lögmál ArkimedesarFlottilraun og sjálfspróf. Gagnvirkar æfingar í flotkrafti.Opna námsefni og æfingar
13Þri. 17. nóv.Mið. 18. nóv.2.3 Loftþrýstingur og lögmál BernoullisLoftþrýstingur, loftstreymi og lyftikraftur. Pappírs- eða vængtilraun; gagnvirkar æfingar í loftþrýstingi og Bernoulli.Opna námsefni og æfingar
14Fim. 19. nóv.Fim. 19. nóv.📝 Stutt námsmat 2Þrýstingur, eðlismassi, flotkraftur, Arkimedes og Bernoulli.
15Þri. 24. nóv.Mið. 25. nóv.🎬 Lokaverkefni – eðlisfræði í myndbandiVelja tilraun eða fyrirbæri, framkvæma, taka upp og útskýra.
16Fim. 26. nóv.Fim. 26. nóv.🎬 Lokaverkefni – áframLjúka myndbandi og útskýringum.

EFTIR HVERN KAFLA

Upprifjun og æfingar

Opnaðu kafla, rifjaðu upp lykilatriðin og svaraðu spurningunum.

1.1Hreyfing

Hraði segir hversu langa vegalengd hlutur fer á ákveðnum tíma. Stefnuhraði segir líka í hvaða átt hluturinn hreyfist og hröðun lýsir breytingu á hraða.

hraði = vegalengd ÷ tími
Opna kafla 1.1

Gagnvirkar æfingar →

1.2Kraftar

Kraftur getur breytt hraða eða stefnu. Kraftar mælast í newtonum (N). Nettókraftur er samanlögð áhrif allra krafta.

  • Þyngdarkraftur verkar niður.
  • Mótkraftur yfirborðs verkar á móti.
  • Núningur vinnur gegn hreyfingu.
  • Massi er ekki það sama og þyngd.
Opna kafla 1.2

Gagnvirkar æfingar →

1.3Frjálst fall

Í frjálsu falli verkar aðeins þyngdarkraftur. Loftmótstaða skýrir hvers vegna hlutir falla ekki alltaf jafnhratt í lofti. Gervihnöttur er í stöðugu falli um jörðina.

Opna kafla 1.3

Gagnvirkar æfingar →

1.4Tregða og lögmál Newtons

Tregða er tilhneiging hlutar til að halda óbreyttri hreyfingu. Lögmál Newtons tengja saman kraft, massa og hröðun.

kraftur = massi × hröðun · F = m × a

▶ Newton’s First Law · FuseSchool

🎬 Lögmál Newtons um hreyfingu

Gagnvirkar æfingar →
2.1Þrýstingur á föst efni

Þrýstingur eykst þegar sami kraftur verkar á minna flatarmál. Þess vegna sekkur mjór hæll frekar í mjúkt undirlag en flatur skór.

þrýstingur = kraftur ÷ flatarmál
Gagnvirkar æfingar →
2.2Þrýstingur í vökvum og flot

Þrýstingur í vökva eykst með dýpi. Flotkraftur verkar upp og samkvæmt lögmáli Arkimedesar jafngildir hann þyngd vökvans sem hlutur ryður frá sér.

Gagnvirkar æfingar →
2.3Loftþrýstingur og lyftikraftur

Loft er efni og veldur þrýstingi. Þegar loft streymir hraðar getur þrýstingur orðið minni; sá þrýstimunur getur myndað lyftikraft.

Gagnvirkar æfingar →

ÆFÐU ÞIG

Gagnvirk upprifjun

Veldu æfingar við hvern kafla hér fyrir ofan eða prófaðu blandaðar spurningar úr allri lotunni. Þú færð skýringu við hvert svar.

Blandaðar spurningar → Orða- og hugtakalisti ↓

ORÐ OG SKÝRINGAR

Orða- og hugtakalisti

Flettu milli hugtaka til að sjá skýringu. Þú getur líka leitað í listanum.

TÍMAR 15–16

Eðlisfræði í myndbandi

Veldu tilraun eða hversdagslegt fyrirbæri úr lotunni. Sýndu það, útskýrðu hvað gerist og notaðu rétt hugtök.

  1. Veldu kraft, hreyfingu, þrýsting eða flot.
  2. Framkvæmdu örugga og skýra tilraun.
  3. Taktu upp stutt myndband þar sem allir hafa hlutverk.
  4. Útskýrðu orsök og afleiðingu með hugtökum lotunnar.