LOTA 2 · EÐLISFRÆÐI
Kraftur
og hreyfing
Hreyfing, kraftar, lögmál Newtons, þrýstingur og flot.
29. SEPTEMBER–26. NÓVEMBER
Kennsluáætlun
Dagsetningar eru mismunandi eftir hópum. Frídagar hafa þegar verið teknir út.
| Tími | 8.A | 8.B | Efni og verkefni |
|---|---|---|---|
| 1 | Þri. 29. sept. | Fim. 1. okt. | 1.1 HreyfingBls. 8–11 + sjálfspróf 1.1. Verklegt: vegalengd, tími og hraði.Opna námsefni og æfingar🎬 Hraði, stefnuhraði og hröðun |
| 2 | Þri. 6. okt. | Mið. 7. okt. | 1.2 Kraftar breyta hreyfinguFyrri hluti: kraftur, kraftmælir, þyngdarkraftur og mótkraftur. Sýnitilraun með kraftmæli.Opna námsefni og æfingar🎬 Kraftar náttúrunnar |
| 3 | Fim. 8. okt. | Fim. 8. okt. | 1.2 Kraftar breyta hreyfinguNúningur, massi og þyngd + valdar spurningar úr sjálfsprófi.Opna námsefni og æfingar |
| 4 | Þri. 13. okt. | Mið. 14. okt. | 1.3 Frjálst fallFrjálst fall, loftmótstaða og hringhreyfing. Gervihnettir og miðsóknarkraftur lauslega.Opna námsefni og æfingar |
| 5 | Fim. 15. okt. | Fim. 15. okt. | 1.4 Tregða og lögmál NewtonsTregða og lögmál Newtons. Stutt tregðutilraun.Opna námsefni og æfingar |
| 6 | Þri. 20. okt. | — (vetrarfrí) | 1.4 Tregða – áframÁframhald í kafla 1.4 og verkefnavinna.Opna námsefni og æfingar |
| 7 | Þri. 27. okt. | Mið. 28. okt. | Ljúka 1.4 og upprifjun 1.1–1.4Klára kafla 1.4 og rifja upp hreyfingu, krafta, frjálst fall og tregðu. Gagnvirkar æfingar úr köflum 1.1–1.4.Opna námsefni og æfingar |
| 8 | Fim. 29. okt. | Fim. 29. okt. | Lögmál Newtons og verkefnavinnaAukatími í lögmál Newtons: tengja lögmálin við dæmi úr daglegu lífi. Gagnvirkar æfingar í lögmálum Newtons.Opna námsefni og æfingar |
| 9 | Þri. 3. nóv. | Mið. 4. nóv. | 📝 Stutt námsmat 1Hreyfing, kraftar, frjálst fall, tregða og lögmál Newtons (1.1–1.4). |
| 10 | Fim. 5. nóv. | Fim. 5. nóv. | 2.1 Þrýstingur á föst efniBls. 38–42 og sjálfspróf. Kraftur og flatarmál; gagnvirkar æfingar í þrýstingi og eðlismassa.Opna námsefni og æfingar |
| 11 | Þri. 10. nóv. | Mið. 11. nóv. | 2.2 Þrýstingur í vökvumÞrýstingur og dýpi, eðlismassi og sýnitilraun. Gagnvirkar æfingar í þrýstingi og eðlismassa.Opna námsefni og æfingar |
| 12 | Fim. 12. nóv. | Fim. 12. nóv. | 2.2 Flotkraftur og lögmál ArkimedesarFlottilraun og sjálfspróf. Gagnvirkar æfingar í flotkrafti.Opna námsefni og æfingar |
| 13 | Þri. 17. nóv. | Mið. 18. nóv. | 2.3 Loftþrýstingur og lögmál BernoullisLoftþrýstingur, loftstreymi og lyftikraftur. Pappírs- eða vængtilraun; gagnvirkar æfingar í loftþrýstingi og Bernoulli.Opna námsefni og æfingar |
| 14 | Fim. 19. nóv. | Fim. 19. nóv. | 📝 Stutt námsmat 2Þrýstingur, eðlismassi, flotkraftur, Arkimedes og Bernoulli. |
| 15 | Þri. 24. nóv. | Mið. 25. nóv. | 🎬 Lokaverkefni – eðlisfræði í myndbandiVelja tilraun eða fyrirbæri, framkvæma, taka upp og útskýra. |
| 16 | Fim. 26. nóv. | Fim. 26. nóv. | 🎬 Lokaverkefni – áframLjúka myndbandi og útskýringum. |
EFTIR HVERN KAFLA
Upprifjun og æfingar
Opnaðu kafla, rifjaðu upp lykilatriðin og svaraðu spurningunum.
1.1Hreyfing
Hraði segir hversu langa vegalengd hlutur fer á ákveðnum tíma. Stefnuhraði segir líka í hvaða átt hluturinn hreyfist og hröðun lýsir breytingu á hraða.
1.2Kraftar
Kraftur getur breytt hraða eða stefnu. Kraftar mælast í newtonum (N). Nettókraftur er samanlögð áhrif allra krafta.
- Þyngdarkraftur verkar niður.
- Mótkraftur yfirborðs verkar á móti.
- Núningur vinnur gegn hreyfingu.
- Massi er ekki það sama og þyngd.
1.3Frjálst fall
Í frjálsu falli verkar aðeins þyngdarkraftur. Loftmótstaða skýrir hvers vegna hlutir falla ekki alltaf jafnhratt í lofti. Gervihnöttur er í stöðugu falli um jörðina.
Opna kafla 1.31.4Tregða og lögmál Newtons
Tregða er tilhneiging hlutar til að halda óbreyttri hreyfingu. Lögmál Newtons tengja saman kraft, massa og hröðun.
▶ Newton’s First Law · FuseSchool
Gagnvirkar æfingar →2.1Þrýstingur á föst efni
Þrýstingur eykst þegar sami kraftur verkar á minna flatarmál. Þess vegna sekkur mjór hæll frekar í mjúkt undirlag en flatur skór.
2.2Þrýstingur í vökvum og flot
Þrýstingur í vökva eykst með dýpi. Flotkraftur verkar upp og samkvæmt lögmáli Arkimedesar jafngildir hann þyngd vökvans sem hlutur ryður frá sér.
Gagnvirkar æfingar →2.3Loftþrýstingur og lyftikraftur
Loft er efni og veldur þrýstingi. Þegar loft streymir hraðar getur þrýstingur orðið minni; sá þrýstimunur getur myndað lyftikraft.
Gagnvirkar æfingar →ÆFÐU ÞIG
Gagnvirk upprifjun
Veldu æfingar við hvern kafla hér fyrir ofan eða prófaðu blandaðar spurningar úr allri lotunni. Þú færð skýringu við hvert svar.
Blandaðar spurningar → Orða- og hugtakalisti ↓ORÐ OG SKÝRINGAR
Orða- og hugtakalisti
Flettu milli hugtaka til að sjá skýringu. Þú getur líka leitað í listanum.
TÍMAR 15–16
Eðlisfræði í myndbandi
Veldu tilraun eða hversdagslegt fyrirbæri úr lotunni. Sýndu það, útskýrðu hvað gerist og notaðu rétt hugtök.
- Veldu kraft, hreyfingu, þrýsting eða flot.
- Framkvæmdu örugga og skýra tilraun.
- Taktu upp stutt myndband þar sem allir hafa hlutverk.
- Útskýrðu orsök og afleiðingu með hugtökum lotunnar.